Virk samkeppni á raforkumarkaði

 

Íslensk Orkumiðlun var stofnuð árið 2017 og fékk leyfi til að stunda raforkuviðskipti sama ár. Í desember 2021 fékk Íslensk Orkumiðlun nafnið N1 Rafmagn.

Rafmagnið sem við seljum er keypt á heildsölumarkaði og selt á smásölumarkaði.

Spurt og svarað

Get ég keypt rafmagn af N1 Rafmagn óháð búsetu?

Já, N1 Rafmagn selur rafmagn til heimila og fyrirtækja um land allt.

Kostar að skipta um raforkusala?

Það kostar ekkert að skipta um raforkusala. Hvorki sölufyrirtækjum rafmagns né dreifiveitum er heimilt að innheimta gjald af notendum fyrir að skipta um raforkusala.  

Hvernig skipti ég yfir til N1 Rafmagn?

Mjög auðvelt er að skipta um raforkusala. Hægt er að skipta um raforkusala og koma í viðskipti við N1 Rafmagn hér beint á vefnum: Fyrirtæki eða Heimili. N1 Rafmagn sér um allra skráningar í framhaldinu. Ekki er þörf á að setja upp aukabúnað og engin truflun verður á rafmagnsnotkuninni við skiptin.

Hvað tekur langan tíma að skipta yfir til N1 Rafmagn?

Segja þarf upp raforkusamningi með eins mánaða fyrirvara. Uppsögnin tekur gildi við næstu mánaðarmót að þeim tíma liðnum. Dæmi: Ef notandi ákveður í janúarmánuði að leita viðskipta við N1 Rafmagn tekur samningur þar að lútandi gildi 1. mars.